Jólafrí

Jæja þá er maður nú loksins búinn með þessa blessuðu önn og hugsanlega enskuna ef allt gengur vel, fyrir utan reyndar eitt fag eftir jól:P gat ekki haldið mér alveg frá þessu:).  Núna tekur bara við að liggja upp í rúmi, eins og svo oft áður, horfa á sjónvarpið og bíða eftir að tíminn líði. Sem betur fer hefur stöð 2 verið duglegir við það að koma manni í jólaskap(sarcasm sign) með því að vera að sýna hryllingsmyndir, já hryllingsmyndir, þegar fer að kvölda.  Sem hjálpar líka við að fara að sofa.  Jólahreingerningarnar eru svo gott sem búnar þar sem ég ákvað að taka til áður en ég þurfti að fara að læra svo ég færi ekki að gera það á meðan. aaaa I have learned. Þarf bara kannski að fara yfir gólfið aftur og þurrka úr glugganum annars er allt rosa hreint og fínt. Svo er bara jólaklipping og Anna kemur heim:).  Líður langur tími áður en ég fer að læra bókmenntir aftur allavega. Annars mæli ég með því að allir lesi leikritið Volpone það er eitt af þeim betri sem nokkur leikritahöfundur hefur skrifað frá öræfi alda.

Btw þetta quote, þar sem ég hef ákveðið að það muni enginn svara þessu hvort sem er, er úr Ellen þætti þar sem hún er að taka þátt í "Civil War reenactment" undir stjórn föður síns.
"We have a family sword?? No wonder all other families have shields"

"Now sleep tight

for tomorrow we die

 that's not true I just like saying that"

 "I know dad you used to tuck me in"

aðeins meistarar meistaranna vita hvaðan þetta quote er fengiðTounge


Jólastress pfffff

Jæja þá er ein ritgerð búin nema prentarinn neitaði að prenta hana rétt út!! Þannig ég þurfti að hlaupa í vinnu til pabba til að fá að prenta hana út. Ég hafði svo engan tíma til að fara í sturtu þannig ég skolaði bara hárið og hljóp út aftur til að hitta hópinn minn og klára leiklistarverkefnið líka, þar sem ég tók þátt í kvikmyndagerð, very nice. Skrifaði meira að segja handritið, var voiceover og myndatökumaður. Tók 4 klst að gera 4 min, well done there. Núna er bara ein ritgerð eftir í einum versta tíma aldarinnar, þeas ég á eftir að laga/breyta uppkastinu algjörlega af þeirri ritgerð því samkvæmt kennaranum má uppkastið ekki vera neitt lýkt því sem maður skilar inn sem lokaritgerð, nei nei nei. Eins gott bara að skrifa hundlélegt uppkast og svo alvöru ritgerðina seinna. Svo er bara próf 17. og klipping 18 og Anna kemur heim 19. Sjibbí. Verður pökkuð dagskrá s.s. í seinni hluta þessa mánaðar en voða lítið stress enda erum við löngu búin að versla jólagjafirGrin , verslunarmiðstöðin í Manchester thank you very much :D Ég er meira að segja búinn að pakka smávegis innGrin bara jólahreingerningarnar eftir og þá er ekki að gera annað en að bíða eftir jólunum. bara nokkrir dagar í það

Uppáhalds staðir á Englandi

Einn af mínum uppáhalds stöðum í Englandi

  dsc00457_745038.jpg

Og tekin frá Uppáhalds staðunum mínumSmile

meðan það snjóaðiSmile

dsc00456.jpg


There and back again (yes I like that title)

Jæja þá er maður kominn frá Keele. And a minute to! soon. Það var æðislegt frá degi eitt, allir(2-5) sem lesa þetta ættu að vita hvað gerðist þá:). Við tók að sjá um okkur sjálf(eða Anna að sjá um mig) næstu 2 vikurnar. Við höfðum það ofsalega kósý í litla herberginu í Horwood.  Við gerðum ýmislegt á meðan dvöl minni stóð og það snjóaði 2x! Samkvæmt heimildum gerist það víst alls ekki oft og þá aðallega í janúar.  Þetta er afskaplega flottur staður sem hún Anna mín býr núna á,þangað til eftir 2 vikur.  Kerfið er þó kannski ekki alveg uppá sitt besta:p. Þegar við fórum að skrá mig sem gest í herbergið kl rétt fyrr 13 sagði konan í afgreiðslunni skæææælbrosandi(kaldhæðni) Þú verður að skrá fyrir kl 12. Við auðvitað vissum ekki þessa reglu þannig hún gaf okkur séns en samt sem áður gátum við ekki hugsað annað en "hvað ætli gerist eftir 12 sem gerir það að verkum að gestir geti ekki gist?" Svo eru það líka ofnarnir úti. Það er víst ekki hægt að hafa kveikt á þeim eftir kl 8 á kvöldin, sem var svosem ofsalega hentugt því þá þá hafði maður ágætis afsökun til kúra undir sæng og horfa á Friends, já við eigum aaaallllt Friends safnið á DvD. Búja! og tvö sett af Scrubs:P Líka ofsalega gott að vera uppí rúmi og spila í sitthvorri tölvunni Zoo Tycoon sem er awesome leikur og vera að horfa á...*hóstGilmoreGirlshóst* Jú Önnu tókst að koma mér uppá lagið að horfa á Gilmore Girls, og þeir sem halda að þeir séu ekki kúl --> http://www.youtube.com/watch?v=faFH2rD-8Z8, awesome atriði!

Annars hugsaði Anna ofsalega vel um mig þarna úti. Fórum að versla 2 daginn og komum hlaðin 4 verslunarpokum til baka sem við þurftum að dröslast með upp brekkur, ofsalega erfitt. Anna sá svo um að elda ofan í mig hakk og gaf mér pítu sem ég borðaði með bestu list :D Eldaði líka Pizzur með mismunandi ávöxtum(ekki eldaða með heldur til að borða í eftirrétt:) og svo Pasta líka sem var ofsalega gott, og ég fékk Fanta Lemon með! awesome! Við kíktum líka í bíó með skiptinemunum á Max Payne. Alltaf gaman að fara í bíó......ekki gaman að horfa á Max Payne, veit ekki enn um hvað hún fjallaði:P og ætla ekki beint að fara að horfa á hana aftur.  Við fórum í verslunarmiðstöðina í Hanley til að kíkja á jólagjafir til að reyna að fá hugmyndir.  Smökkuðum þar ofsalega góðar Muffins, heitt súkkulaði og ís á Millie's Cookies. Það var awesome.  Það voru komnar jólaskreytingar út um allt, á öllum hringtorgum, mörgum heimahúsum(þeir eru ofsalega hrifnir af því að vera með blikkljós og mikið af þeim líka)

Við Kíktum líka til Manchester til að fara í jólaverslunarferð. Við tókum rútu frá Hanley um morgunin en því miður var hátalarakerfið í rútunni aðeins bilað þannig við sem sátum aftast heyrðum við ekkert sem bílstjórinn sagði þar á meðal þegar hann sagði stoppið okkar. Við s.s. misstum af því og þegar Anna sagði honum frá því þá sagði hann bara "nei hátalarakerfið virkar vel, þið verðið bara að fara út í Manchester Centre" sem við vissum ekkert hvar var eða hvaða strætó við áttum að taka þaðan.  Nema þegar þangað var komið fórum við í Information og spurðum hvar við værum og hvort við gætum komist til Trafford Centre("kringlan" sem við vorum á leiðinni í) því við hefðum misst af stoppinu okkar og vissum ekki hvert við áttum að fara. Konan svaraði með því að segja að ef við hefðum tekið strætó frá þeim stað þá hefðum við verið lengur í burtu. Mikil hjálp í því svari. Hún sagði okkur samt sem áður hvaða strætó við áttum að taka og hvar þannig okkur tókst að komast á leiðarenda, bara hálftíma strætóferð.  Þessi verslunarmiðstöð var fáránlega stór! það var skautasvell þarna inni risastór matsalur með skipaþema, löbbuðum þaðan úr Austurlenska torginu og framhjá New Orleans hlutanum. Við löbbuðum svo úr Skipaþemanu niður marmarstiga í "The Great Hall" og til French Quarter.  Við vorum þarna inni frá 11 um morguninn til 18 og náðum ekki að skoða allt sem var að sjá. Tókst samt að kaupa allnokkrar jólagjafir:D. Þegar komið var að því að fara heim tókum við strætó nema hvað það myndaðist allsvaðaleg móða á glerið þannig við sáum ekki út og vorum næstum búin að missa af stoppinu okkar aftur, ef ekki hefði verið fyrir hugrekki Önnu að spyrja Manchester búa sem sagði okkur hvert við áttum að fara. Við komum dauðþreytt heim og við tók ritgerðarsmíð næstu daga.

Anna var ofsalega dugleg enda búin að vera að fá glæsilegar einkunnir fyrir ritgerðirnar sínar þarna úti.  Við horfðum svo á nokkrar jólamyndir og kveiktum á seríu og höfðum það ofsalega kósý.  Við reyndum líka að baka nokkrar smákökur. Efst á lista var lakkrístoppar nema hvað enginn var þeytarinn til að stífþeyta eggin þannig allt var handgert. Eftir 40 min ákváðum við að það væri ekki alveg að gerast þannig við slepptum því:p Reyndum að gera hnetusmjörskökur eftir uppskrift á netinu nema hvað eitthvað hefur vantað í þá uppskrift því þegar við reyndum að baka þær þá voru þær ekki alveg að festa sig og voru blautar í miðjunni og tjah...hráar þannig Anna tók sig til og gerði Rice Krispies köku handa okkur sem tókst svaðalega vel. Mjög gott að fá sér svoleiðis í eftir eftirétt þegar maður er búinn með ávöxtinn. Við verðum orðin rosalega góð í að gera námsmannamat þegar Anna kemur aftur heim:D Höfum líka fengið að kynnast hvernig maður getur gert bakaða kartöflu að máltíð:D Þetta voru svaðalega skemmtilegar tvær vikur og við tekur að reyna að vera upptekinn næstu tvær svo þær séu ekki lengi að líða.


Einn af þessum stóru

Þá er einn af þessum stærstu dögum í mínu lífi genginn í garð en þannig er mál með vexti að ég og Anna Margrét trúlofuðum okkur í gær GrinGrin og gætum ekki verið ánægðari.  Við héldum uppá trúlofunina með því að skála í Sprite-i í flottu krúsunum okkar, með textanum úr "For Once in My Life"skrifaðan á, og borða Kinder-egg.

 

Knús og kveðjur til allra

Anna Margrét og Daði 


Efnahagur, lausn

Helstu höfuðpaurar landsins, F.Í.D, kom saman í dag og erum við komnir með lausn á vandanum.

 Daði sem næsti seðlabankastjóri

Seljum alla Davíð út í ánauð til að koma peningum inní landið, var klárlega Davíð sem klúðraði málunum

Tími F.Í.D mun koma!


Sleeps like an angry bear - Honestly To Quiet


I´m gonna stick an umbrella up your ass and open it

 Jújú það er rétt hjá Gumma, iddqd er godmode í gömlu doom leikjunum en virkar í mörgum id leikjum líka :)

Síðustu myndir sem ég hef horft á voru Beverly Hills Cop, The Last Boy Scout, Mayor Payne(nostalgía), Fifth Eliment, The Italian Job og War(ekki á einum degi:)
í Beverly Hills cop kemur Damon Wayans fyrir í einu atriði, lætur Murphy fá banana. Í The Last Boy Scout leika hann og Willis saman, Wayans leikur líka í M. Payne. Fifth Eliment skartar einnig Willis í aðalhlutverki. Í Italian Job leikur Jason Statham og viti menn....hann leikur einnig í War. Spurning um að og horfa á Leathal Weapon 4, Jet Li er líka í War, og eftir það Patriot, finna svo A Knights tale til að halda þemanu áfram.  En The Last Boy Scout er besta one-liner mynd sem komið hefur út!

 Joe Hallenbeck: This is the '90s. You don't just go around punching people. You have to say something cool first.

Jimmy Dix: [to himself] Okay, what would Joe do at a time like this? He'd kill everybody and smoke some cigarettes. 

On February 12, 2008, the official Star Wars website announced that a new film will be released in theaters on August 15, 2008. The CGI animated film will be about the clone wars.


IDDQD

Í Terminator 3 er konuvélmennið brjálað tæknivædd og í myndinni er bílaeltingaleikur þar sem Connor nær að stinga hana af. Mér er spurn; Afhverju tengist hún ekki gervihnöttum og gps-ar hann til helvítis og og eltir hann bara þannig uppi...eða senda bara her af tortímendum. Annars var ég líka að horfa á Warlords með Jet Li. Asískar myndir eru gífurlega góðar.  Þeas asískar martial art myndir, leikararnir þar eru allavega miklu betri heldur en í BNA martial arts myndum, fyrir utan Mortal Kombat og eflaust önnur sem ég er að gleyma.  Ég hefði ekkert á móti því að vera jafn góður og Jet Li.....án þess að vera í 20 ára þjálfun. Svona eins og ég væri til í að vera geðveikt góður á píanó án þess æfa mig(mig vantar matrix innstungur)

hver fattar titilinn? 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband